Leita í fréttum mbl.is

Húrra fyrir erni

Það munaði ótrúlega litlu að erninum hafi verið útrýmt af Íslandi á síðustu öld. Blessunarlega höfðu framsýnir menn vit á að láta vernda hann, en stofninn er enn mjög lítill. Það er sérstaklega gaman að heyra að hann skuli vera að hjarna við, nú á ári líffræðilegrar fjölbreytni.

Fyrir tveimur árum fékk ég lánaða mynd af arnarunga fyrir kynningarstarf líffræðiskorar HÍ. Ég læt hana fylgja hér því hún er hreint stórkostleg.lffraedi_orn.jpg

Myndina tók Róbert Arnar Stefánsson (copyright), Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi. Á vef stofunnar má finna fleiri myndir af örnum og náttúru Breiðafjarðar

Hér er síðan auglýsingin fullunnin, í baksýn má sjá litaðar frumur (sem Skarphéðinn Halldórsson tók - copyright).

Drápseðli í DNA



 


mbl.is Arnarvarpið framar vonum í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef ég man rétt, þá var bannað eitthvað um 1960 að setja eitur í hræ úti á víðavangi til að vinna á ref. Eitrun þessi var það skaðvænlegasta fyrir örninn, sem er ekki aðeins veiðifugl heldur einnig hrææta.

Hlynur Þór Magnússon (IP-tala skráð) 2.6.2010 kl. 18:09

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Sæll Hlynur

Ég man þetta ekki alveg sjálfur, en samkvæmt fuglavernd hefur þú rétt fyrir þér. Ernir geta ekki leyft sér neina sérvisku, þeir þurfa sinn bita og engar refjar.

http://www.fuglavernd.is/arnarvernd/html/verndun/index.html

Arnar Pálsson, 3.6.2010 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband