27.7.2011 | 16:08
Heilastærð, hvel og breiddargráður
Rangtúlkanir koma í mörgum myndum. Sumir gefa sér rangar forsendur, aðrir láta trú sína trompa staðreyndir. Enn aðrir eta upp vitleysur annara, sem er reyndin í þessu tilfelli.
mbl.is byggir greinarstúfinn "Stærri heilar fjær miðbaug (sem áður hét er fólk gáfaðara á norðurhveli?)" á frétt í the Telegraph (Northerners' brains are bigger, scientists find). Sú grein var byggð á rannsókn Eiluned Pearce og Robin Dunbar (Latitudinal variation in light levels drives human visual system size) í tímaritinu Biology letters.
Rannsókn Pearce og Dunbar snérist reyndar um aðallega um augnbollastærð - sem stækkar (hlutfallslega) þegar norðar dregur frá miðbaug (sjá mynd). Skoðaðar voru hauskúpur úr 13 mismunandi samfélögum, frá Ástralíu til "skandinavíu". Þetta eru niðurstöðurnar, sem þeir síðan leyfa sér að ræða á varkárum nótum.
Höfundarnir minntust á það augnstærð gæti verið þróunarlegt svar við minni birtu á hærri breiddargráðum, að þar breytist stofn mannvera þannig að þeir sem eru með stærri augu eignist fleiri eða heilbrigðari afkvæmi. Þeir gera því skóna að þróun augnstærðar sé afleiðing birtustigs, eins og hefur reyndar sést í öðrum dýrahópum (morgunhanar eru augnstórir og næturhrafnar sérstaklega).
We have shown that human orbital volume significantly increases with absolute latitude independently of phylogeny, brain size and body mass, suggesting that there has been selection for larger eyeballs under progressively lower light conditions.
Þeir leyfa sér að áætla að stærri augu kalli á stærri svæði í heilanum til að vinna úr sjónrænum upplýsingum.
Finally, owing to tight scaling between visual system components, larger eyeballs will necessitate proportionately enlarged visual cortices, and hence, a parallel positive latitudinal trend in these brain regions.
Hér er rætt um stærð heilastöðva, en ekki um gáfur. Greinarhöfundar ræða reyndar stærð heilans (líklega í fréttatilkynningunni sem greinar the Telegraph og the Guardian byggja á). En þeir leggja áherslu á að stærð heila segir ekki til um gáfur. Þeir leggja áherslu á hversu hratt þessi breyting hefur orðið á íbúum norðlægari svæða:
Humans have only lived at high latitudes in Europe and Asia for a few tens of thousands of years, yet they seem to have adapted their visual systems surprisingly rapidly to the cloudy skies, dull weather and long winters we experience at these latitudes
Einhver gæti sagt að mistök mbl.is séu skiljanleg, á ekki að vera hægt að treysta erlendum fréttamiðlum? Jú það á að vera hægt að treysta þeim, en fólk verður einnig að sýna lágmarksdómgreind (ekki bara lágmarksþýðingarhæfileika). Grein the Telegraph var með sláandi titil (Northerners' brains are bigger, scientists find) sem átti sannarlega að grípa athygli lesenda, en blaðamaðurinn dró í land strax í fyrstu setningu og kom aðalatriði rannsóknarinnar til skila ("Unfortunately, that doesnt necessarily mean you are more intelligent than people from the south just that you have evolved to cope with the longer winters and greyer skies in northern climes" ). Engu slíku var til að dreifa hjá heimavarnarliðinu okkar.
E.s.
Í fyrstu útgáfu fréttarinnar tókst mbl.is meira að segja að rugla saman breiddargráðum og hvelum (norðurhvel og suðurhvel). Pearce og Dunbar sáu breyting á augnstærð með breiddargráðum, en mbl.is segir að það sé munur á fólki á norður og suðurhveli. Síðan koma gullkorn á borð við þetta:
Vísindamennirnir telja að skynfæri þeirra sem lifa við litla dagsbirtu, þurfi að vinna meira til að skynja hluti. Það er að augun og heilinn þurfi að vinna meira til að mynda þá mynd sem skynfæri eins og augu skynja. Af þeim sökum er heilinn stærri.
Hér er ekki nóg að vinna meira, það þarf að vinna betur! Það á bæði við um okkar norðlægu heila og skríbertana á mbl.is.
Ítarefni:
Eiluned Pearce og Robin Dunbar Latitudinal variation in light levels drives human visunal system size Biology letters 2011.
The Guardian People at darker, higher latitudes evolved bigger eyes and brains
The Telegraph Northerners' brains are bigger, scientists find
Leiðrétting: "heilans" vantaði i setninguna "Greinarhöfundar ræða reyndar stærð heilans (líklega í fréttatilkynningunni...". Velvirðingar er beðist á mistökunum.
Stærri heilar fjær miðbaug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 30.7.2011 kl. 00:40 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Takk fyrir það, góð grein :)
Magnús (IP-tala skráð) 27.7.2011 kl. 16:29
Takk
Kris Finnbogason (IP-tala skráð) 27.7.2011 kl. 20:15
Traustur, Arnar!
Kristinn Theódórsson, 27.7.2011 kl. 22:01
Flott sundurgreining á fréttinni. Leiðinlegt hvað þetta getur verið óvandað hjá þeim.
jakob (IP-tala skráð) 28.7.2011 kl. 00:39
Hversu sorglegt er það að margir þeir sem eru að skrifa á moggablogginu eru betri blaðamenn heldur en þeir sem hafa það að atvinnu?!
Gestur (IP-tala skráð) 28.7.2011 kl. 01:38
Takk fyrir þessa grein, Arnar.
Guðmundur D. Haraldsson, 29.7.2011 kl. 15:06
Flott grein hjá þér Arnar, eins og fólk hefur sagt þá ætti þessi grein heima þar sem fréttin er.
Hins vegar langar mig að bæta við að persónulega finnst mér niðurstöðurnar vart marktækar, þar sem skoðaðar voru 55 höfuðkúpur af fólki frá 12 löndum (13 samfélögum segir þú), það gera 4,58 manneskjur á land og 4,23 manneskjur á samfélag. Það sem ég hef lært í líkinda- og tölfræði er að oftast þurfi um og yfir 1.000 manneskjur í slembiúrtaki til að fá marktækar niðurstöður (ef þær þá fást). Ég veit ekki hve mikill munurinn er á milli landa (eða breiddargráðum ef út í það er farið) og hvað þá með staðalfrávikið svo ég get ekki reiknað hve stórt úrtakið þurfi að vera, en þó væri spennandi að gera í eitt skipti fyrir öll eina góða rannsókn til að sýna fram á þróun mannslíkamans miðað við búsetu (ég tel mig hafa rétt fyrir mér þegar ég segi að vitað er nokkurnvegin hvenar skandinavía var numin) og sjá þá þar að leiðandi um það bil hve langan tíma það tekur mannslíkamann að þróast og aðlagast breyttum aðstæðum.
Mbk. Bjarni Rúnar Ingvarsson
Bjarni Rúnar Ingvarsson (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 00:01
Takk fyrir athugasemdirnar allir.
Bjarni.
Vissulega er sýnið frekar smátt og sannarlega krafa um að endurtaka greininguna með hauskúpum frá fleiri löndum og þjóðarbrotum.
Galdurinn er að nota hauskúpur úr samfélögum sem hafa verið t.t.l. stöðug, t.d. hvað varðar búferlaflutninga eða erfðablöndun.
Tölfræðin í greininni er nokkuð traust, og þeir leiðrétta fyrir nokkrum áttum sem gætu brenglað niðurstöðurnar (m.a. þróunarlegan skyldleika).
Þróun getur gerst á stuttum tíma, t.d. sjást mjög miklar breytingar á genum tengdum blóðfrumum og súrefnisflutningi í íbúum Tíbet og Andesfjalla, sem gerst hafa á um 10000 árum.
Arnar Pálsson, 30.7.2011 kl. 00:46
Afhverju lestu ekki greinina Bjarni þar er í það minnsta sýnt að þetta er tölfræðilega marktækt. Staðalfrávikin eru líka gefin upp.
Síðan byggir líkanið þeirra ekki bara á 5 manneskjum úr hverju landi heldur á öllum gögnunum.
Til að sýna fram á að eitthvað samband sé markǽkt skiptir máli hversu sterkt eða öfgafullt sambandið er upp á sýnastærðina sem þarf að nota. Ef ég ætlaði til að mynda að sýna fram á mun í meðallengd músa og meðallengd manna þyrfti ég ekkert svakalega sýnastærð. Ef ég ætlaði aftur á móti að sýna fram á mun milli ákveðna hópa manna, kannski milli landa þyrfti sýnastærðin að vera meiri.
Jóhannes (IP-tala skráð) 30.7.2011 kl. 00:49
Fjarlægði tvö auglýsinga-komment
Arnar Pálsson, 12.8.2011 kl. 10:52
Takk fyrir góða grein
klara (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 11:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.