Leita í fréttum mbl.is

Erindi: Frumu- og sameindalíffræðileg stjórnun greinóttrar formgerðar

Á morgun, föstudaginn 6. janúar 2012, mun Valgarður Sigurðsson verja doktorsritgerð sína „Frumu- og sameindalíffræðileg stjórnun greinóttrar formgerðar og bandvefsumbreytingar í brjóstkirtli“ (Cellular and molecular mechanisms in breast morphogenesis and epithelial to mesenchymal transition).

Valgarður hefur unnið um nokkurar ára skeið með Þórarni Guðjónssyni og Magnúsi K. Magnússyni á rannsóknastofu í stofnfrumufræðum við Lífvísindasetur Læknagarð. Verkefni Valgarðs fjallar um ferla sem tengjast þroskun æðaþels, sérhæfingu frumugerða og áhrif þeirra á brjóstakrabbamein.

Úr tilkynningu.

Markmið verkefnisins var að kanna hlutverk æðaþels og sprouty prótína í greinóttri formgerð og EMT í brjóstkirtli og möguleg áhrif á framþróun brjóstakrabbameina.

Megin niðurstöðurnar sýna að æðaþælsfrumur eru mikilvægar fyrir vöxt og formgerð þekjuvefjar brjóstkirtilsins og því mikilvægur hluti af stofnfrumuvist kirtilsins. Æðaþelsfrumur stuðla þannig að myndun greinóttrar formgerðar og bandvefsumbreytingu. Þessar niðurstöður gefa til kynna að æðaþelsfrumur geti þjónað áður óþekktu hlutverki í framþróun og meinvörpun basal-líkra brjóstakrabbameina. Af niðurstöðunum má ennfremur álykta að Sprouty-2 sé mikilvægt stjórnprótein greinóttrar formgerðar brjóstkirtils og að bæling á því geri frumur móttækilegri fyrir bandvefsumbreytingu.

Erindið hefst kl 11:00 í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands. Það er öllum opið og í kjölfarið fer fram opin vörn á doktorsverkefninu, þar sem Valgarður þarf að svara spurningum og athugasemdum andmælenda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband