31.3.2014 | 09:35
Gallað vinnumatskerfi HÍ vinnur gegn gæðum vísinda
Greinin Gallað vinnumatskerfi HÍ vinnur gegn gæðum vísinda birtist í Fréttablaðinu og á Vísir.is þann 29. mars 2014. Höfundar eru Pétur Henry Petersen taugalíffræðingur og Arnar Pálsson erfðafræðingur, dósentar við HÍ.
Greinin er endurprentuð hér, með inngangi sem var klipptur af til að uppfylla takmarkanir um orðafjölda.
Inngangur.
Háskóli Íslands er ein verðmætasta sameign íslensku þjóðarinnar, en er alvarlega undirfjármagnaður. Fjárskorturinn birtist í lágum launum akademískra starfsmanna og stundakennara, miklu kennsluálagi, lélegri nýliðun og veikum stuðningi við rannsóknir. Forsendur góðrar kennslu og menntunar eru að allir þessir þættir séu í góðu lagi. Þetta ástand vinnur því gegn gæðum. HÍ er ódýr skóli vegna þess að laun eru lág og of stór hluti kennslu er á hendi stundakennara, sem eru á smánarlegum launum. Ríkið verður að styðja betur við starfsemi skólans (eða fækka nemendum) ef hann á að standa undir nafni. En það eru einnig gallar á innra starfi skólans, sem vinna gegn gæðum.
Greinin sjálf eins og hún birtist.
Við HÍ er notað matskerfi, sem metur rannsóknarframlag hvers vísindamanns. Punktar eru gefnir fyrir framleiddar einingar svo sem vísindagreinar, bækur, einkaleyfi o.s.frv. Punktarnir, eða stundum einfaldar talningar á greinum, stjórna dreifingu fjármagns, styrkjum til einstakra vísindamanna, styrkjum til framhaldsnema, launum kennara, framgangi kennara og fjárframlögum til deilda (sem sagt öllu sem skiptir máli).
Kerfið, sem upprunalega átti að vera ritlaunakerfi, hefur tekið yfir stjórn skólans. Að okkar mati grefur þetta kerfi (sem reyndar er sameiginlegt fyrir alla opinberu háskólana) sérstaklega undan gæðum. Vandamálið í hnotskurn er að kerfið verðlaunar framleiðni á kostnað gæða. Við HÍ eru stunduð afar fjölbreytt vísindi og á mismunandi forsendum. Það er erfitt að bera saman framleiðni í rannsóknum, t.d. í fornleifafræði, kennslufræði og líffræði, m.a. vegna munar á fræðigreinum, aðferðum, kostnaði og birtingartíðni.
Gallar punktakerfisins
Á kerfinu eru margir og alvarlegir gallar. Sá helsti er að magn og gæði fara sjaldnast saman. Verst er að kerfið mótar hegðun vísindafólks, og ógnar þar með akademísku frelsi og vinnur gegn gæðum. Punktakerfi HÍ umbunar fyrir fjölda vísindagreina, á meðan lítið tillit er tekið til gæða. Að mestu er horft framhjá mun á eðli mismunandi fræðigreina.
Kerfið hvetur til skammtímarannsókna á kostnað langtímarannsókna. Kerfið gerir það nánast ómögulegt að stunda kostnaðarsamar rannsóknir sem taka tíma. Kerfið hvetur fólk til að gera auðveldar rannsóknir, sem líklegar eru til að skila afurð sem fyrst eða sem oftast.
Á svipaðan hátt vinnur kerfið gegn nýsköpun því henni fylgir nánast samkvæmt skilgreiningu, mikil áhætta. Punktar hafa bein áhrif á launaflokk og framgang í starfi. Punktar eru einnig notaðir til að borga akademískum starfsmönnum launabónus (kallast þá vinnumatspunktar) sem getur numið margra mánaða launum, einkum hjá þeim sem lært hafa að spila á kerfið. Punktakerfið tekur lítið tillit til fjölskyldufólks og vinnur líklega gegn velgengni kvenna og barnafólks. Kerfið eins og það er notað í HÍ vinnur einnig markvisst gegn vissum tegundum vísinda. Ef hliðstæðu matskerfi væri beitt á íþróttir, færu flest stig til körfuboltafólks og knattspyrna legðist af.
Flestir sem tala fyrir kerfinu (eða allavega ekki gegn því) eru í þeirri aðstöðu að vera á sviðum þar sem punktaframleiðni er einfaldlega mikil. Margir sem græða á kerfinu eru í þeirri stöðu að tengjast einfaldlega mörgum birtingum. Þannig er gríðarlegur aðstöðumunur milli fólks og fræðigreina og kerfið í raun að mæla hann.
Í síðustu úthlutunum vísindanefndar háskólaráðs var byggt að mjög miklu leyti á einfaldri talningu á birtum greinum. Einbeittari trú á gildi framleiðni sem mati á vísindastarfi má vart finna. Ef ekkert er að gert mun kerfið grafa hægt og örugglega undan tilraunavísindum og öllum fræðum sem ekki standa undir mikilli og hraðri framleiðslu vísindagreina. Það mun rýra gæði og draga úr fjölbreytileika rannsókna og að lokum gjaldfella HÍ. Að reka rannsóknarháskóla án nægjanlegs fjármagns með kerfi sem verðlaunar framleiðni en ekki gæði, leiðir til framleiðslu á því sem lítið er á bak við.
Leggjum niður eða endurskoðum kerfið
Stjórnvöld þurfa að átta sig á því að nýsköpun og menntun þarfnast fjárfestingar í háskólum og rannsóknasjóðum. Háskólaráð HÍ verður að skilja að magn er ekki gæði. Hugsa þarf reiknilíkan HÍ upp á nýtt og aðgreina laun og fjárframlög til deilda frá hrárri framleiðni. Horfa þarf til hvernig þessi mál eru leyst erlendis. Lagfæringar á kerfinu kosta ekki fé, heldur þor, framsýni og vilja stjórnar skólans og starfsmanna. Vegna þess að HÍ er ein mikilvægasta eign íslensku þjóðarinnar og starfsemi hans varðar almannaheill er bréf þetta birt á opinberum vettvangi.
Við óskum eftir því að menntamálaráðherra láti gera utanaðkomandi úttekt á matskerfi opinberu háskólanna hið fyrsta, með áherslu á gæði og jafnræði fræðigreina.
Ítarefni og skyldar greinar.
Arnar Pálsson 21. jan. 2014 Sturlað stigakerfi í HÍ
Arnar Pálsson 2. des. 2013 Toppnum náð - vindur úr blöðrunni
Arnar Pálsson 24. feb. 2014 Fjársveltur Háskóli
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:40 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.