4.5.2014 | 02:13
Kambeðlur í fótabaði í Þórsmörk
Bækurnar og leikföngin kveiktu hjá mér áhuga á risaeðlum og hleyptu ímyndunaraflinu á flug. Mér er sérstaklega minnisstæð ein Tarzanbókin, þar sem hann lenti í dulinni veröld þar sem útdauðar risaeðlur voru bráðlifandi.
Stærðin á risaeðlum dugir til að fylla mann lotningu og ótta. Að ímynda sér þórseðlur í tjörninni eða snareðlur að veiða kindur á Vestfjörðum. Bara það að standa við fótskemil beinagrindar af T. rex er nóg til að manni renni kalt vatn milli skinns og hörunds.
Það er spennandi að heyra um risaeðlufótspor í Túrkmenistan, og hugsa um þessi stórfenglegu dýr og þann óratíma sem liðin er síðan þau skildu við.
Síðustu risaeðlurnar dóu út fyrir um 65 milljónum ára. Sem er rúmlega 40 milljón árum áður en elsti hluti Íslands varð til. Því er harla ólíklegt að finngálkn hafi nokkurn tímann veitt bleikju í Þingvallavatn eða kambeðlur legið í sólbaði í Þórsmörk.
Mynd Tyrannosaurus rex steingervingur kenndur við stofnanda safnsins Sue Hendrickson. Náttúrufræðisafnið í Chicago (the Field Museum) er ævintýralegur staður.
Að auki.
Frétt MBL.is er þýdd nánast orðrétt af vef AFP fréttaveitunar.
Alvöru Júragarður á hásléttunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:43 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Við höfum Framsóknarflokkinn, er það ekki nóg.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.5.2014 kl. 17:53
Sæll Vilhjálmur
Þetta er athyglisverð spurning. Hvaða risaeðlu myndir þú vilja fá í staðinn fyrir Framsóknarflokkinn? Eða fyrir Pírata?
Arnar Pálsson, 5.5.2014 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.