5.11.2018 | 10:17
Vísindaspjall 16. nóvember á Kex
Föstudaginn 16. nóvember 2018 verður vísindaspjall og aðalfundur Líffræðifélagsins haldinn á Kex Hostel, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík. Húsið opnar kl. 19:15, aðalfundurinn verður frá 19:30 til 20:00, og svo hefst vísindaspjallið í beinu framhaldi ca. kl. 20:00. Meiri upplýsingar um viðburðinn á vef félagsins og Facebook, og einnig að neðan.
Dagskrá aðalfundar
- Skýrsla stjórnar
b. Lagðir fram skoðaðir reikningar félagsins
c. Lagabreytingar (sækja skjal)
d. Kosning stjórnar
e. Önnur mál
Stjórn félagsins skipa Lísa Anne Libungan formaður, Guðmundur Árni Þórisson vefstjóri, Hlynur Bárðarson gjaldkeri, Hrönn Egilsdóttir og Eva María Sigurbjörnsdóttir meðstjórnendur. Varamaður í stjórn er Lovísa Ólöf Guðmundsdóttir og skoðunarmaður reikninga Snorri Páll Davíðsson.
Kjörtímabilið eru tvö ár og rennur því út kjörtímabil þriggja stjórnarmanna, þeirra Lísu, Hrannar og Evu Maríu. Lísa gefur kost á sér til endurkjörs.
Vísindaspjallið
Þema kvöldsins verður "Vísindi í fjölmiðlum" . Við fáum til okkar góða gesti sem hafa einmitt miðlað vísindum í fjölmiðla upp á síðkastið á mismunandi máta:
Hrönn Egilsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun
Kjartan Hreinn Njálsson, ritstjóri hjá Fréttablaðinu
Rannveig Magnúsdóttir, líffræðingur hjá Landvernd og TEDx fyrirlesari
Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og þáttastjórnandi Sjónaukans
Kvöldið verður á léttu nótunum og því tilvalið fyrir líffræðinga og áhugamenn um líffræði að auka tengslanetið. Endilega skráið ykkur á viðburðinn hér: http://ww.facebook.com/events/343268402886668
eða með því að senda póst á stjorn@biologia.is, svo að hægt sé að áætla fjölda.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.