14.11.2018 | 18:46
Vísindaspjall 2018
Föstudaginn 16. nóvember 2018 verður vísindaspjall og aðalfundur Líffræðifélags Íslands haldinn á Kex Hostel, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík.
Aðalfundurinn verður frá. 19:30 til 20:00, og hefst vísindaspjallið í beinu framhaldi ca. kl. 20:00.
Þema kvöldsins verður Vísindi í fjölmiðlum . Við fáum til okkar góða gesti sem hafa einmitt miðlað vísindum í fjölmiðla upp á síðkastið á mismunandi máta:
Hrönn Egilsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun
Kjartan Hreinn Njálsson, ritstjóri hjá Fréttablaðinu
Rannveig Magnúsdóttir ,líffræðingur hjá Landvernd og TEDx fyrirlesari
Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og þáttastjórnandi Sjónaukans
Kvöldið verður á léttu nótunum og því tilvalið fyrir líffræðinga og áhugamenn um líffræði að auka tengslanetið. Endilega skráið ykkur á viðburðinn hér: http://ww.facebook.com/events/343268402886668
eða með því að senda póst á stjorn@biologia.is, svo að hægt sé að áætla fjölda.
Hvað? Hefðbundin aðalfundarstörf og síðan vísindaspjall með nokkrum góðum gestum. Þema kvöldsins verður Vísindi í fjölmiðlum.
Meiri upplýsingar um viðburðinn: http://biologia.is/vidburdir/visindaspjall-og-adalfundur-2018/
og skráning hér: http://ww.facebook.com/events/343268402886668
eða með því að senda póst á stjorn@biologia.is, svo að hægt sé að áætla fjölda.
Allir velkomnir og ókeypis inn.
Mynd af þanghafinu utan úr geimnum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:48 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.