Leita í fréttum mbl.is

Fyrsta fréttin um líffræðilega fjölbreytni

iyb-logo-cover

Sameinuðu þjóðirnar og fleiri aðillar standa fyrir því að tileinka árið 2010 alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni.

Vefsíða verkefnisins er The International Year of Biodiversity

Fjölbreytni er auðskilin, en hvað er líffræðileg fjölbreytni? Hún spannar víðan skala frá afbrigðum til heilla vistkerfa.

Það er fjöldi tegunda

Það er mismunur á milli tegunda

Það er breytileiki innan tegunda og stofna

Það er breytileiki í vistkerfum og búsvæðum lífvera

Markmið hins alþjóðlega árs líffræðilegar fjölbreyttni er að benda á:

  • Mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni fyrir líf okkar, og hvernig fjölbreytnin er að minnka.
  • Hvað fólk er að gera til að verjast tapi á líffræðilegri fjölbreytni.
  • Hvernig fólk er að fagna hinu alþjóðlega ári líffræðilegrar fjölbreytni.
Upp á ensku er þetta.
  • The important role biodiversity plays in our lives and what is happening to it.
  • What people are doing around the world to combat biodiversity loss
  • How people are celebrating the International Year of Biodiversity

Vonandi gera íslendingar eitthvað rótækt í málinu. Þótt það séu ekki margar mismunandi tegundir á íslandi er mikil fjölbreytileiki í afbrigðum og hér finnast einstök vistkerfi.

Verndun vistkerfa er oft rökstudd af fagurfræðilegum eða líffræðilegum rökum, en það sem meiru skiptir er að framtíð mannkyns hangir á því að við eyðum ekki náttúrunni. Auður jarðar liggur að miklu leyti í lífverunum sem búa hana, ekki malbikinu sem við leggjum.

 


mbl.is Líffræðileg fjölbreytni er lífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Melrakkasetur

Melrakkinn er eina landspendýrið á Íslandi sem telst upprunalegt. Öll hin, mýs, hreindýr, rottur og minkar fluttust hingað fyrir tilstuðlan mannsins.

Heimskautarefir eru aðlagaðir lífsbaráttu á norðurhjara, þeir skipta t.d. um lit eftir árstíðum, sem er heppilegt fyrir rándýr á veiðum.

Geispar_meiraMyndir af vef melrakkaseturs.

Á Súðavík er nú starfrækt Melrakkasetur (www.melrakki.is), í samstarfi sveitarfélagsins, einkaaðilla og fyrirtækja. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er forstöðumaður. Hún hefur meðal annars unnið að rannsóknum á refum á Hornströndum og á hagamúsum á Kjalarnesi, hvorutveggja með Páli Hersteinssyni.

Ungir_yrdlingar_af_morauda_litarafbrigdinu


Stórbrotið ferðalag kríunnar

Kríur ( Sterna paradisaea) eru smáir fuglar (á milli 95-125 grömm) en engu að síður leggja þær undir sig rúmlega 20.000 km flug á milli heimskautanna. Það tvennt sem kom mest á óvart við ferðalag kríunnar var millilending á miðju hafi (líklega til að...

Erindi: Eitt um nýru, annað um skemmdan fisk

Að minnsta kosti tvö erindi af líffræðilegum toga verða nú vikunni. Fimmtudaginn 14. janúar verður fyrirlestur um nýrnasjúkdóma á vegum Læknadeildar og GPMLS (miðstöð framhaldsnáms í lífvísindum). Læknagarður 3.hæð, kl 11:15. Erindið flytur Dr. Karl...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband