Leita í fréttum mbl.is

Vísindin í daglegu lífi

Sjaldan var rætt um Norman Borlaug úti á götu. Framlag hans og þeirra sem stóðu að grænu byltingunni er samt stórkostlegt, þótt vitanlega kunni ekki allir að meta það.

Margir vísindamenn stunda rannsóknir í hagnýtum sviðum, sem tengjast t.d. nýtingu náttúrulegra stofna, rannsóknum á sjúkdómum eða nytjaplöntum.  Aðrir stunda rannsóknir sem miða að því að svara grundvallarspurningum. Slíkar rannsóknir kunna að virðast hin mesta endaleysa og tímasóun, en sagan geymir mörg dæmi um grunnrannsóknir sem síðar öðluðust mikið hagnýtt gildi. Tvö dæmi um slíkt er erfðafræðin og þróunarfræðin. Hvernig geta rannsóknir á mismunandi skjaldbökum á Galapagos gagnast mannkyninu, eða tilraunir á hæð og áferð baunaplantna gagnast mannkyninu?

Viðfangsefni Darwins var breytileiki í náttúrunni, og Mendels grundvallarlögmál erfða. Þegar lögmál Mendels enduruppgötvuðust og voru sameinuð þróunarkenningunni, varð til ótrúlega öflugt fræðisvið, stofnaerfðafræðin*. Hún hjálpar okkur að skilja þróun tegunda og erfðir sjúkdóma en einnig að stýra ræktun afbrigða og leita uppi nýjan erfðabreytileika sem getur nýst í framtíðinni.

Framlag plönturæktenda síðustu aldar byggðust á stofnerfðafræðinni, áherslu á erfðabreytileikann, framförum í efnafræði og tæknivæðingu landbúnaðar. Velmegun sem vesturlandabúar lifa við í dag væri ekki möguleg án grænu byltingarinnar. Byltingin er ekki án fórna, en gott er að ímynda sér hvar við værum ef hennar hefði ekki notið við.

*Strangt tiltekið urðu til tvö náskyld fræðasvið, stofnerfðafræðin (population genetics) og magnbunda erfðafræðin (quantitative genetics).


mbl.is Faðir grænu byltingarinnar látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erindi: Efnaskipti frumunar

Miranda Stobbe heldur fyrir lestur föstudaginn 11 september 2009 um gagnagrunna sem hýsa upplýsingar um efnaskiptaferla frumna.

Erindið verður í Öskju, kl 14:00, og verður flutt á ensku.

Ágrip erindisins og nánari lýsingu á fyrirlesaranum má finna á vef HÍ.


Kvikmynd um Darwin

Ráðstefna um Darwin, sýning um Darwin, málþing um Darwin, pistill um Darwin...og nú loksins kvikmynd um Darwin. Í tilefni þess að 200 eru liðin frá fæðingu Charles Darwin hefur fólk fundið sér ýmislegt til dundurs. Yðar auðmjúkur er hér ekki...

Ágrip fyrir líffræðiráðstefnuna

15 september næstkomandi rennur út frestur til að senda inn ágrip á líffræðiráðstefnuna . Hún verður haldin 6 og 7 nóvember 2009, í Öskju, Norræna Húsinu og sal Íslenskrar erfðagreiningar. Venjulega er afskaplega gaman á líffræðiráðstefnunni, margskonar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband