28.5.2008 | 10:13
Hver um aðra þvera
Árni Einarsson hélt erindi um vistkerfi Mývatns fyrr í vor (í námskeiði í líffræðiskor) og lýsti því sem gerist þegar mýflugustofninn er í hámarki. Þá liggja lirfur hver um aðra þvera á botninum og eftir klak hneppast þær í stóra strokka, sem getur gert torveldað öndun, bænahald og aðra mannlega leiki. (Mynd af vefsíðu Rannsóknarstöðvarinnar við Mývatn, tekin af Árna Einarssyni)
Rannsóknirnar eru framhald verkefnis sem Árni og Arnþór Garðarson birtu með Antony Ives í Nature fyrr á árinu (sjá einnig fyrri færslu). Antony Ives er prófessor við Wisconsin háskóla í Madison, og einbeitir sér að fræðilegri vistfræði, hermílíkönum og tölulegum greiningum. Íslendingar þurfa að eignast sterka vísindamenn á þessu sviði, vegna Mývatns og sérstaklega rannsókna á vistkerfum sjávar. Rannsóknir Ives spanna samspil bráðar og afræningja allt upp í stöðugleika vistkerfa, sjá vefsíðu (mér fannst líka gaman að sjá að Karen Abbott er nýdoktor á tilraunastofunni, hún hélt utan um dýrafræðifótboltann í Chicago þegar ég var þar, kjarnorkukvendi sem óttast hvorki jöfnur né takka).
Annars er von á Anthony Ives til landsins í haust. Til stendur að halda ráðstefnu til heiðurs Arnþóri Garðarsyni sem hefur leitt rannsóknirnar við Mývatn um áratugaskeið. Vonandi er ég ekki að leka leyndarmáli, en lofa samt að bera frekari tíðindi af ráðstefnunni þegar þau berast með bréfdúfunni frá útsendara mínum.
![]() |
Mýfluguský við Mývatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2008 | 13:46
Afmæli örverufræðifélagsins - dagskrá
Lokadagskrá hefur verið birt fyrir afmælisfund örverufræðifélagsins. Nokkur yfirlitserindi spanna sviðið, frá rannsóknum á örverum í matvælum til spurninga um stöðu og mikilvægi örvera í vistkerfum (sem tæpt hefur verið á hér - sjá fyrri færslu). Úr auglýsingu:
Örverufræðifélag Íslands fagnar nú 20 ára afmæli sínu og af því tilefni verður hið árlega vorþing með öllu stærra sniði þetta árið. Á morgun, þriðjudaginn 27. maí 2008 kl 13:00-16:30 verður haldin ráðstefna á Háskólatorgi í sal HT101 undir yfirskriftinni "Örverufræðirannsóknir á Íslandi". Haldin verða yfirlitserindi yfir örverufræðirannsóknir á Íslandi síðustu áratugina þar sem farið verður vítt og breytt yfir svið örverufræðinnar.
Dagskrá:
13:00-13:05 Setning - Viggó Marteinsson formaður ÖRFÍ
13:05-13:50 Umhverfisfræði Jakob Kristinsson
13:50-14:35 Matvælaörverufræði - Hélène L. Lauzon, Franklín Georgsson og
Hannes Magnússon
14.35-15:00 Kaffi - veggspjaldasýning
15:00-15:45 Mannaörverufræði Karl G. Kristinsson
15:45-16:30 Dýraörverufræði Eggert Gunnarsson
16:30- Móttaka á Háskólatorgi
Fyrir utan ráðstefnusalinn verður svo veggspjaldasýning sem fundargestir geta skoðað í kaffihléi og í móttöku eftir ráðstefnuna.
Þeir sem ætla að sýna veggspjöld eru minntir á að mæta tímanlega til að hengja þau upp.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2008 | 11:33
Bakteríurnar og görnin
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2008 | 10:17
"remote contact"
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó