4.11.2013 | 13:21
Til varnar rannsóknarsjóðum
Berist fjárlaganefnd Alþingis
Athugasemd vegna fjárlagafrumvarps 2014 varðandi niðurskurð til samkeppnissjóða RANNÍS.
Ágætu nefndarmenn,
Við undirrituð lýsum yfir áhyggjum af þeim niðurskurði á fjárlögum til vísindastarfs í landinu sem nú er yfirvofandi. Við teljum það alvarleg mistök að draga svo mjög úr framlögum til RANNÍS eins og gert er með núverandi fjárlagafrumvarpi.
Um 30% niðurskurður fyrirhugaður á nýjum styrkveitingum
Af gögnum á heimasíðu RANNÍS (http://rannis.is) má sjá að með óbreyttu frumvarpi munu nýjar styrkveitingar dragast saman um u.þ.b. 30% að heildarupphæð á milli ára. Þá er ekki tekið tillit til þess að nú voru þeir styrkir sem áður féllu sérstaklega undir Rannsóknanámssjóð auglýstir með úthlutun úr Rannsóknasjóði í huga. Sé það reiknað með er samdrátturinn enn meiri. Niðurskurður á nýveitingum rannsóknastyrkja bitnar sérstaklega hart á ungum vísindamönnum.
30-40 ársverk ungra vísindamanna munu tapast við þennan niðurskurð
Miðað við að áfram fari um 80% af úthlutunum RANNÍS í launagreiðslur liggur fyrir að a.m.k. 30-40 störf muni tapast úr íslensku vísindasamfélagi á næsta ári. Við höfum sérstakar áhyggjur af þessum samdrætti í nýveitingum styrkja þar sem hann mun hafa veruleg áhrif á unga vísindamenn í landinu. Atvinnuöryggi ungra vísindamanna er nú þegar mjög ótryggt og úthlutanir úr sjóðum RANNÍS er helsta leið ungra vísindamanna til framfærslu fyrstu 10-15 árin eftir að grunnháskólanámi lýkur.
Niðurskurður til RANNÍS þýðir niðurskurð á bestu rannsóknunum
RANNÍS hefur yfir að ráða öflugustu og mikilvægustu samkeppnissjóðum landsins. Öflugustu vísindamenn landsins keppa sín á milli um úthlutanir og verkefni eru aðeins styrkt standist þau og aðstandendur þeirra ströngustu alþjóðlegar gæðakröfur. Stuðningur úr samkeppnissjóðum er því besta leiðin til að stuðla að rannsóknum á heimsmælikvarða. Í ljósi þeirra miklu fjármuna sem er veitt til rannsókna og þróunar á Íslandi með öðrum hætti en gegnum samkeppnissjóði er það óskiljanleg ákvörðun að skerða mikilvægasta samkeppnissjóð landsins á sviði vísinda.
Margföldunaráhrif verða af tapi á mannauði
Tekið getur áratugi að byggja aftur upp það sem nú á að skera niður. Það er háalvarlegt mál að vísindasamfélagið verði fyrir slíkum skakkaföllum nú eftir viðvarandi niðurskurð undanfarins áratugar, enda hefur lengi legið fyrir að vísindakerfið á Íslandi hefur verið undirfjármagnað. Ekki verður staðar numið í uppbyggingu vísindastarfs tímabundið til að halda áfram þar sem frá var horfið nokkrum árum síðar. Fyrir hvert ár með skertu fjármagni verður margra ára afturför í vísindastarfi, m.a. vegna taps á mannauði úr samfélaginu.
Raunlækkun styrkja verður enn meiri en 30%
Hækkun sú er varð á framlögum úr ríkissjóði til RANNÍS á síðasta ári var leiðrétting á þeirri skerðingu sem sjóðirnir hafa orðið fyrir gagnvart launavísitölu. Eins og kemur fram að ofan rennur um 80% af úthlutunum úr Rannsóknarsjóði í laun. Miðað við launavísitöluþróun undanfarinna 10 ára, að viðbættum hækkunum á tryggingagjaldi, mun raunskerðing á fjárframlögum úr RANNÍS nema fimm prósentustigum árlega umfram ofangreindan niðurskurð.
Árið 2016 verða því nýjar úthlutanir komnar niður í um 60% af því sem þær voru árið 2005, og þó hefur alltaf staðið til að efla samkeppnissjóðina.
Niðurskurðurinn gengur þvert á stefnumótun Vísinda og tækniráðs
Þetta gengur þvert á stefnu Vísinda og tækniráðs, sem hefur gert ráð fyrir eflingu samkeppnissjóða á Íslandi með það að markmiði að fjármögnun rannsóknaháskóla úr samkeppnissjóðum nái sama hlutfalli og að meðaltali í OECD árið 2016. Til þess að það takist þarf að verða 4-7 földun á framlögum úr sjóðunum næstu 2-7 ár í stað þess niðurskurðar sem nú er boðaður. Nánar má lesa um þetta í skýrslu Forsætisráðuneytisins frá desember 2012, Ný sýn - Breytingar á vísinda- og nýsköpunarkerfinu.
Við viljum að lokum árétta að fjárfesting í grunnrannsóknum er forsenda hagvaxtar vestrænna þjóða, þar sem þekkingarsköpun styður við verðmætasköpun sem byggir á hugviti. Keðjuverkandi áhrif af niðurskurði í samkeppnissjóði geta því orðið mikil.
147 vísindamenn skrifa undir þessa athugasemd.
Vísindamenn skora á fjárlaganefnd að endurskoða fjárlög fyrir samkeppnissjóði Rannís
4.11.2013 | 10:56
Fjöldauppsagnir á vísindamönnum
Í fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er fyrirhuguð skerðing á sjóðum sem styrkja rannsóknir hérlendis. Skerðingin er nokkur hundruð milljónir, í rannsóknasjóði, tækniþróunarsjóði og markáætlun Rannís, auk þess að rannsóknanámsjóður er lagður af.
Rannsóknastyrkir fara að mestu leyti (70-80%) í laun framhaldsnema og annars starfsfólks. Laun framhaldsnema eru um 300.000 kr á mánuði, og þeir eru fæstir með samninga lengur en til 3 ára. Framhaldsnemar og ungir vísindamenn eru hugsjónafólk, sem vinnur langan dag fyrir fáar krónur í óstöðugu umhverfi.
Ef skerðingin á sjóðunum verður samþykkt, verða í raun fjöldauppsagnir á ungum vísindamönnum.
Nemendur sem hafa unnið að verkefnum í 2 eða fleiri ár, geta átt á hættu að flosna upp úr námi og mörg rannsóknarverkefni munu lognast út af. Afleiðingarnar verða líka fjölþættari, eins og aðrir hafa rakið.
En það sem skiptir mestu máli er að vísindasamfélag íslands láti í ljós skoðun sína á þessum áformum.
Mætum á þingpallana
Klukkan 15:30 í dag (mánudaginn 4. nóvember 2013) verða sérstakar umræður um fjármögnun samkeppnissjóðanna á Alþingi. Þingfundur byrjar klukkan þrjú en umræða um sjóðina kl. 15.30.
Vísindamenn og þeir sem bera hag vísinda og fræða fyrir brjósti ættu að fjölmenna á þingpallana í dag.
Sérstök umræða kl. 3.30 síðdegis um framtíð rannsóknarsjóða og nýsköpunar.
Málshefjandi er Svandís Svavarsdóttir og til andsvara verður mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson.
Helstu áherslur málshefjanda eru:
Framtíðarsýn ráðherrans varðandi rannsóknartengda nýsköpun á Íslandi;
eðlilegt hlutfall samkeppnissjóða af framlagi hins opinbera til
vísindastarfs; grunnrannsóknir; Rannsóknarsjóður- hlutverk hans og þróun?
![]() |
Segja uppsagnir vofa yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
4.11.2013 | 09:58
Grein um viku opins aðgangs
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2013 | 14:07
Dagskrá líffræðiráðstefnunar 2013
Vísindi og fræði | Breytt 5.11.2013 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó