27.8.2013 | 17:20
Strandfurur eru ekki risafurur
Strandfurur eru ekki risafurur. Einhver miskilningur hefur læðst inn í frétt mbl.is, á skógarbruna í Yosemite þjóðgarðinum. Mig grunar að þeir hafi ruglast á stærstu lífveru jarðar og hæstu lífveru jarðar. Risafurur (Sequoiadendron giganteum) eru stærsta (í grömmum taldar)*, en strandfurur (Sequoia sempervirens) voru taldar geta orðið hæstar**
Yosemite dalurinn og þjóðgarðurinn er frekar fjarri strönd Kyrrahafsins, umlukinn tröllauknum klettum og skógi vaxinn.
Innan svæðisins eru þrír lundir með risafurur og þær eru nú í hættu. Reyndar kveikja skógfræðingarnir reglulega í gróðri á svæðinu, m.a. til að koma í veg fyrir að mikill eldsmatur sé til staðar, að mig grunar einnig til að hjálpa fræjum að spíra.
Myndina að ofan tók ég í Kings Canyon reitnum haustið 2005.
Neðri myndin er tekin af sama tilefni, og sýnir stýrðan bruna á svæðinu.
*Sumir segja reyndar að vissir jarðvegssveppir spanni þvílíkt flæmi að hver "einstaklingur" hljóti að vera þyngri en risafura.
**Önnur tré hafa samt náð meiri hæð, sjá vísindavefinn.
Guðjón S. Jenssen leiðrétti skilgreininguna á furum Leiðrétting
Ítarefni:
JMH. Hversu há og hversu þung er risafura í samanburði við steypireyði?. Vísindavefurinn 29.11.2005. http://visindavefur.is/?id=5443.
HMH. Hvert er stærsta tré í heiminum?. Vísindavefurinn 20.7.2000. http://visindavefur.is/?id=676. (Skoðað 27.8.2013).
Wikipedia Sequoiadendron giganteum
Sequoia sempervirens - USDA Forest Service
![]() |
Hæstu tré heims í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2013 | 08:42
Svartamarkaður með sæði
Eins og fram kom í gær, stendur nú yfir málþing um staðgöngumæðrun í Þjóðminjasafninu. Málþingið er skipulagt af Norrænu lífsiðanefndinni, og fjallað er um málið frá mörgum hornum.
Rúv fjallaði um málið 26. ágúst 2013.
Brýnt er að þjóðir heims komi sér saman um löggjöf um staðgöngumæðrun. Þetta kom fram í máli siðfræðinga sem töluðu á ráðstefnu um málefnið í Reykjavík í dag.
Hópur fræðimanna vinnur nú að því að semja ný lög sem leyfa staðgöngumæðrun hér á landi. Grár og svartur markaður með tæknifrjóvganir fer ört vaxandi í heiminum. Norræna lífsiðfræðinefndin blés til ráðstefnunnar. Eftirspurn eftir staðgöngumæðrun fer ört vaxandi í hinum vestræna heimi. Fleiri og fleiri glíma við ófrjósemi og fleiri og fleiri slá barneignum á frest og reynast svo of gamlir þegar til kastanna kemur. Þá leita samkynhneigðir í auknum mæli eftir þjónustunni.
Forstjóri Danska sæðisbankans, Ole Schou er markaðsmaður að mennt og lítur á þetta sem spurningu um eftirspurn og framboð. Eftirspurnin sé næg, og ef hömlur eru settar á framboðið, muni það leiða til svartamarkaðar.
Ole Schou er bankastjóri danska sæðisbankans sem er sá stærsti í heimi. 35 þúsund börn eru getin með sæði úr bankanum í yfir 70 löndum. 90% af sæðinu er til útflutnings. Bankastjórinn segir framboð og eftirspurn eftir sæði það mikla að nauðsynlegt sé að veita þjónustuna svo hún leiti ekki undir yfirborðið. Of ströng löggjöf geti slegið á framboðið en ekki á eftirspurnina.
Meira um það síðar.
Ítarefni:
Rúv 26. ágúst 2013. Svartur getnaðarmarkaður fer vaxandi
26.8.2013 | 13:34
Siðferðlileg álitamál um staðgöngumæðrun
22.8.2013 | 10:46
Sjálfstæðir fjölmiðlar eru nauðsynlegir
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó