Leita í fréttum mbl.is

Þakkir fyrir árið 2009

Á nýliðnu ári voru tímamót í vísindasögunni. Tvö stórmenni vísindasögunnar áttu merk afmæli. Annar þeirra var Charles Robert Darwin, sem setti fram þróunarkenninguna og hinn Galileo Galilei sem beindi fyrstur sjónauka að stjörnunum. Hinu alþjóðlega ári stjörnufræðinnar hefur verið gerð góð skil af stjörnufræðivefnum, (einnig www.2009.is) en afmæli Darwins og bókar hans um uppruna tegundanna, var gerð skil hér og á vefnum darwin.hi.is.

DarwinVeggspjaldHér verður stiklað á stærstu viðburðum Darwin daganna 2009 hérlendis.

Á 200 ára afmælisdegi Charles Darwin þann 12 febrúar 2009 var haldið málþing undir yfirskriftinni Hefur maðurinn eðli?

Þá voru einnig veitt verðlaun í ritgerðasamkeppni sem efnt var til meðal framhaldskólanema. Fyrstu verðlaun fékk Kári Gautason, tvítugur Vopnfirðingur sem nam við M.A.

Á haustmánuðum hófst fyrirlestraröð undir merkjum Darwin daganna. Dagskrá fyrirlestraraðarinnar:

6 júlí - Montgomery Slatkin - Neanderthalsmaðurinn: erfðamengi og stofnerfðafræði

29 ágúst - Peter og Rosemary Grant - Finkur Darwins og þróun

3 október - Guðmundur Eggertsson - Uppruni lífsins

24 október -  Ólafur Ingólfsson og Ingibjörg Svala Jónsdóttir - Steingervingar og þróun lífs

31 október - Joe Cain - Rannsóknir Darwins á vitsmunalífi mannsins

7 nóvember - Hrefna Sigurjónsdóttir og Sigurður Snorrason - Þróun atferlis

14 nóvember - Einar Árnason - Sterkt val á Pan I geninu í þorski vegna veiða: spá um hrun fiskirís.

21 nóvember - Hafdís Hanna Ægisdóttir - Lífríki og þróun á eyjum

28 nóvember - Linda Partridge - Hin nýja líffræði öldrunar

5 desember - Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir og Bjarni K. Kristjánsson - Uppruni tegunda á Íslandi

12 desember - Snæbjörn Pálsson - Þróun kynæxlunar

Darwinbolur1Hagsmunafélag líffræðinema lét búa til boli af þessu tilefni. Þeir eru enn til sölu.

Erindin voru öll hin frambærilegustu, umræður fjörugar og aðsóknin ljómandi fín (ég á eftir að telja hausa í gestabókinni, en geri það fyrir lokauppgjör). Allir íslensku fyrirlesararnir hafa skrifað kafla um sínu hugðarefni sem munu birtast í ritgerðarsafni síðar á þessu ári...meira um það síðar.

Fyrirlestraröðin var styrkt af rektor Háskóla Íslands (sem einnig setti fyrirlestraröðina), Líffræðistofnun HÍ, Mennta og menningarmálaráðaneyti Íslands, Líffræðifélagi Íslands, Gróco ehf, Landbúnaðarháskóla Íslands, Náttúrustofu vestfjarða, Vísindafélagi Íslendinga og Háskólanum á Hólum. Við erum styrktaraðillum ákaflega þakklát. Einnig kom fjöldi fólks að skipulagningu og framkvæmd, bæði fyrirlestraraðar og málþings. Þeim verður aldrei fullþakkað.

Einnig stóðu Hólaskóli og Háskólinn á Akureyri fyrir ráðstefnu 24 nóvember 2009, þegar 150 ár voru liðin frá útgáfu uppruna tegundanna. Dagskráin var hin glæsilegasta og erindin (öll nema mitt) voru reglulega góð.

Skipuleggjendur Darwin daganna draga sig hér með í hlé, hverjum langar að bera kyndil líffræðilegs fjölbreytileika? Nú er runnið upp árið 2010, ár líffræðilegs fjölbreytileika.

Aðstandendur:

Arnar Pálsson - Háskóla Íslands

Bjarni Kristófer Kristjánsson - Háskólanum á Hólum

Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir - Fræða og rannsóknasetur HÍ á vestfjörðum

Hafdís Hanna Ægisdóttir - Landbúnaðarháskóla Íslands

Snæbjörn Pálsson - Háskóla Íslands

Steindór J. Erlingsson - vísindasagnfræðingur

Fagleg ráðgjöf: Einar Árnason - Háskóla Íslands


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Ég segi bara takk fyrir árið. Þetta var mjög skemmtilegt. Vonandi getum við sameinast um að nýta meðbyrinn sem fékkst á síðasta ári til að efla enn frekar umfjöllun um vísindi á Íslandi.

Takk fyrir mig.

- Sævar

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 7.1.2010 kl. 14:25

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Sæll Sævar

Takk sömuleiðis, það hefur verið gaman að fylgjast með og læra af ykkur stjörnuliðsmönnum.

Vonandi leggjast allir á árarnar og auka veg og vanda vísinda hérlendis.

Arnar Pálsson, 7.1.2010 kl. 14:48

3 Smámynd: Arnar

Þakka þér Arnar fyrir margar áhugaverðar færslur.

Arnar, 7.1.2010 kl. 16:46

4 Smámynd: Arnar Pálsson

Takk nafni, og þér kærlega fyrir athugasemdir sem einkennast af innsæi og þekkingu.

Arnar Pálsson, 14.1.2010 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband