6.3.2013 | 14:28
Google-kort yfir efnaskipti mannsins
Efnaskipti fruma er meiriháttar flókin. Þegar ég hóf meistaranám, hékk á vegg tilraunastofu í sameindalíffræði kort af efnaskiptum kóligerilsins. Myndun amínósýra, kjarnsýra og fitusameinda, auk efnaskipta og orkumyndunarferla, í risastóru neti með hundruði eininga og örva.
Efnaskiptum má lýsa myndrænt, en einnig með stærðfræðilegum hætti. Það er viðfangsefni kerfislíffræði, (systems biology) sem er afkvæmi stærðfræði, fræðilegrar líffræði og lífefnafræði. Kerfislíffræðingar koma úr mörgum áttum, nú tildags margir úr verkfræði vegna þess að þar er góð kennsla í reikniritum og stærðfræði.
Nýverið var samþykkt að stofna tvær nýjar línur í framhaldsnámi við HÍ, á sviði lífupplýsingafræði (bioinformatics) og lífverkfræði (bioengineering). Þær verða í boði frá og með haustinu 2013, nánari upplýsingar síðar.
Við Háskóla Íslands er kerfislíffræðisetur, sem hefur það m.a. að markmiði að kortleggja efnaskipti mannafruma. Önnur útgáfa slíks korts var kynnt fyrir skemmstu.
Um það er fjallað í nýlegri fréttatilkynningu frá HÍ:
Rannsóknahópur við Kerfislíffræðisetur Háskóla Íslands undir forystu Ines Thiele, dósents við Verkfræði- og náttúruvísindasvið háskólans, hefur ásamt hópi erlendra samstarfsmanna víða um heim búið til yfirgripsmesta reiknilíkan af efnaskiptaferlum mannslíkamans sem til er. Vonir standa til að efnaskiptalíkanið geti nýst til að finna orsakir sjúkdóma á borð við sykursýki, krabbamein og jafnvel tauga- og geðsjúkdóma og jafnframt til þess að finna nýjar aðferðir til að takast á við þá. Grein um afrek hópsins birtist nýverið í nýjasta hefti Nature Biotechnology, einu virtasta tímariti á sínu sviði í heiminum.
Miðað við hversu margir erlendir miðlar hafa veitt þessu eftirtekt, átti ég von á að íslenskar fréttastofur myndu segja frá þessu framfaraskrefi. En þær þurfa líklega bara einhverja hvatningu.
Umfjöllun erlendra miðla um efnaskiptakort mannsins (http://humanmetabolism.org).
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.