Leita í fréttum mbl.is

Afturábak eða nokkuð á leið: Staða náttúruverndar á Íslandi

Þóra Ellen Þórhallsdóttir hélt yfirlitserindi á líffræðiráðstefnunni sem kallaðist Afturábak eða nokkuð á leið: Staða náttúruverndar á Íslandi.

Leifur Hauksson tók viðtal við hana af þessu tilefni og var það flutt í útvarpsþættinum Sjónmál í dag (13. nóvember 2013). Á vef RÚV segir:

Það er ekki tilefni til að afturkalla náttúruverndarlögin í heild segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor við HÍ sem sat í nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga. Hún segir jafnframt stöðu náttúruverndarmála á Íslandi í dag alls ekki nógu góða.

Hún bendir á að fé til náttúrverndarmála sé skorið grimmilega niður í fjárlögum. Hún telur að skoða þurfi friðlýsingar í nýju ljósi og hugsa þær út frá t.d.vistkerfum og vatnasvæðum, Sum vatna- og lindasvæði okkar séu einstök.

Hægt er að hlýða á viðtalið á vef RÚV,  Náttúrufegurðin verður í askana látin.

Einnig má geta þess að stjórn Líffræðifélags Íslands sendi frá sér ályktun til stjórnvalda og hvatti þau til að staðfesta Náttúruverndarlögin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Nýja ríkisstjórnin hefur sett aldeilis í bakgír í náttúruverndarmálunum, því miður. Þetta er ekki framtíðin.

Úrsúla Jünemann, 14.11.2013 kl. 15:51

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Sæl Úrsúla

Þeir halda bara áfram þar sem frá var horfið. Ábyrgðin er kjósenda og þeirra sem andmæla ekki.

Arnar Pálsson, 15.11.2013 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband