Leita í fréttum mbl.is

Áhrif erfðamengunar á villta laxastofna

Áhrif erfðamengunar á villta laxastofna, greinarkorn þetta var sent til Fréttablaðsins og birtist 8. júní 2017. Millifyrirsagnir eru blaðsins.

Erfðamengun verður við blöndun alidýra og villtra ættingja þeirra. Hún leiðir til minni lífslíka blendinganna og hefur neikvæð áhrif á viðgang villtra tegunda. Erfðamengun er ólík annarri mengun, því hún einskorðast við tegundir sem geta æxlast við tiltekin eldisdýr eða plöntur. Hún er ólík náttúrulegri blöndun milli villtra stofna eða undirtegunda. Afkvæmi Íslendinga og Taílendinga eru dæmi um eðlilega blöndun innan tegundar, ekki erfðamengun.

Þekkt hefur verið í áratugi að kynbætur breyta erfðasamsetningu alistofna, sem verða frábrugðnir upprunalegu tegundinni. Fimm atriði vega þar mest: i) Við kynbætur er valið fyrir eiginleikum og genum sem tengjast þeim. ii) Alistofnar aðlagast eldinu (líf undir verndarvæng mannsins er ólíkt villtri náttúru). iii) Erfðabreytileiki tapast, því kynbætur byggjast á vali eiginleika sem reynast vel í eldi (aðrir tapast). iv) Áhrif tilviljunar eru meiri í eldi en náttúrulegum stofnum vegna lítillar stofnstærðar (veldur líka tapi á erfðabreytileika). v) Eldisstofnar endurspegla uppruna sinn. Síðasta atriðið skiptir verulegu máli á Íslandi því hérlendis er ræktaður lax upprunninn úr blöndu af 40 norskum stofnum og einum sænskum. Erfðasamsetning norskra eldislaxa er ólík villtum stofnum. Spyrja má, hvaða afleiðingar hefur erfðamengun á villta laxfiska?

Merkjanleg áhrif
Fleiri en hundrað rannsóknir í Noregi, Skotlandi og víðar lýsa áhrifum erfðablöndunar villtra og eldislaxa. Hér er bara tæpt á nokkrum atriðum. Munurinn á villtum laxi og eldislaxi birtist t.d. í því að eldisfiskar vaxa hraðar, eru stærri, verða kynþroska seinna og eru ekki jafn hræddir við afræningja og villtir laxar. Áhrif eru einnig merkjanleg í blendingum villtra laxa og eldislaxa, og snerta t.d. æxlun, fæðunám, viðgang og þroska.
Nýleg erfðagreining á rúmlega 120 villtum laxastofnum í Noregi afhjúpaði umtalsverða erfðablöndun frá eldisfiski í þriðjungi stofna. Í kjölfarið greindu Geir Bolstad og félagar áhrif blöndunarinnar á 62 villta stofna, könnuðu mun á kynjum, landsvæðum og ám með stórlöxum eða smálöxum. Niðurstöðurnar voru afgerandi, aukið hlutfall gena úr eldisfiskum leiðir til margvíslegra breytinga á villtum stofnum. Í stórlaxaám í miðhluta Noregs jókst hlutfall fiska sem voru kynþroska 2ja ára í hverjum árgangi samfara aukinni erfðamengun frá eldisfiski. Hærra hlutfall gena úr eldisfiski leiddi einnig til þess að karlkyns smálax í Mið-Noregi var stærri við kynþroska. Sterkustu áhrifin voru á laxastofnana nyrst í Noregi, sem eru fjarskyldari eldislaxinum. Erfðamengunin þar hafði áhrif á stærð og aldur við kynþroska, óháð sjóaldri fisksins. Breytingarnar virka e.t.v. lítilvægar eða jafnvel jákvæðar fyrir leikmenn (stórir laxar eru skemmtilegri veiðifiskur). En þær geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir villta fiska, því staðbundnir stofnar eru yfirleitt vel aðlagaðir að sínu umhverfi. Smálaxaár í Noregi eru t.a.m. gott umhverfi fyrir minni laxa en verra fyrir stórlaxa. Ef erfðablöndunin gerir einstaklinga í smálaxastofni stærri, getur það dregið úr hæfni þeirra til að lifa af.

Ástæða til endurskoðunar
Niðurstöður Bolstad og félaga eru óvissu háðar, eins og allar rannsóknir á náttúrunni. En spurningin er ekki lengur hvort gen frá eldisfiski hafi áhrif á villta laxastofna, heldur hversu mikil og hvers eðlis þau eru? Stóra spurningin er, leiðir erfðablöndunin til hnignunar og útdauða villtra stofna? Það er full ástæða til að endurskoða laxeldi í sjókvíum hérlendis. Sérstaklega þar sem íslenskir laxar eru fjarskyldir eldislaxi. Ástæðan er sú að flæði gena frá eldisfiskum getur breytt eiginleikum villtra íslenskra laxastofna, gert þá minna hæfa í lífsbaráttunni og dregið úr getu þeirra til að þróast í framtíðinni.

Frændur vorir í Noregi og vinir í Síle hafa brennt sig á flestu sem hægt er í laxeldi. Vonandi berum við gæfu til að læra af mistökum þeirra og fórna ekki lífríki vatna og hafs fyrir ódýrar og skammsýnar lausnir í laxeldi.

Heimildir
Karlsson o.fl. 2016 ICES Journal of marine science doi.org/10.1093/icesjms/fsw121,

Glover o.fl. 2017 Fish and Fisheries doi: 10.1111/faf.12214,

Bolstad o.fl. 2017 Nature Ecology & Evolution doi:10.1038/s41559-017-0124


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband