Leita í fréttum mbl.is

Tungutal í Apatar

Þessir atferlisfræðingar eru náttúrulega bilaðir, að setja fínar upptökuvélar í hendurnar á simpönsum og leyfa þeim að leika sér með þær í fleiri mánuði. Engu yrði áorkað við að setja páfagauka við stjórnborð kjarnorkuvers eða þráðorma á alþingi Íslendinga (..og þó!).

Myndskeiðin sem aparnir tóku eru frekar brotkennd, en samkvæmt vefsíðu BBC virtust þeir fatta hvernig myndavélin virkaði, skoðuðu myndskeið af öðrum öpum og starfsfólkinu að undirbúa málsverði fyrir þá o.s.frv.

Simpansar eru vissulega skynugar skepnur, kunna að nota verkfæri, lifa í hópum og sýna flókið félagsatferli. Þeir eru svo sannarlega ekki einstakir meðal apa. Nærskyldir ættingjar þeirra Homo sapiens hafa mikla samskiptagetu og mynda stór og flókin samfélög. Tungumál þeirra eru mjög fjölbreytt og samfélög einkennast af mikilli sköpunargleði (þeir búa t.d. til kvikmyndir um 3 metra háar bláar verur og framandi vistkerfi).

Aðrir apar hafa einnig sín eigin tungumál, eins og rannsóknir nokkurra vistfræðinga hafa sýnt. Klaus Zuberbühler byrjaði að rannsaka apa (Diana monkeys - veit ekki um íslenskt heiti) um 1990 og skildi ekkert í skvaldri þeirra.

main-image-red-putty.jpgNú hefur hann og aðrir ágætis skilning á orðaforða þessara apa og annara. Orðaforðinn litast vissulega af veruleika dýranna, hjá rauðrófu guenonapa* pyow varar við hlébarða og hack varar við skallaerni.

Það sem er kannski stórkostlegast er að þeir geta skeytt saman orðum pyow pyow pyow...hack hack hack þýðir "flýtum okkur héðan burt".

Mismunandi samsetningar af hack og pyow hafa síðan ólíka merking. Hlýða má á tóndæmi á vef the Independent.

Heyrumst...

*Þýðing skv. Kenja dýralífið - putty-nosed monkeys - mynd af vef Cameroon wildlife aid fund.

Ítarefni:

The independent 2008 Steve Connor 'Pyow-pyow': how the putty-nosed monkey tells its friends there's a leopard coming

var articleheadline = "'Pyow-pyow': how the putty-nosed monkey tells its friends there's a leopard coming"

National Geographic 2006 Nicholas Bakalar Monkeys Use "Sentences," Study Suggests

The New York Times 2010 Nicholas Wade Deciphering the Chatter of Monkeys and Chimps


mbl.is Fyrsta kvikmyndin gerð af öpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landnotkun 2010

Mamma hvað er mold?

Nútildags alast flest börn upp  í borgum, þekkja húsdýr eingöngu af myndum og náttúru af afspurn. Þrátt fyrir að yngri kynslóðin kunni margar brellur, geti hringt eftir skyndibita eða selt heimateiknaðar teiknimyndir á netinu, virðast mörg þeirra vita á hvaða tré "pastabaunirnar" vaxa.

Samt sem áður byggir öll tilvist okkar á náttúrunni, hún er uppspretta næringarinnar og orkunar sem drífur bifreiðar og farsíma, hún setur tilvist okkar skorður, með hita/kulda, geislum og jarðhræringum.

Hamingjan, þetta átti nú ekki að verða svona háfleygt.

Ég vildi bara minna fólk á að við tilheyrum náttúrunni, erum ekki yfir hana hafin. Það borgar sig að byggja landnýtingu á skilingi á náttúrunni ekki bara gróðahagsmunum. 

Náttúrustofa Suðurlands og samstarfsaðillar standa fyrir fundi næsta fimmtudag (28. janúar), um landnotkun.


Plastfjallið

Plast var fundið upp rétt fyrir miðbik síðustu aldar, og eftir seinna stríð komst framleiðsla á því á verulegt skrið. Plast brotnar ekki svo gjörla niður, lang stærsti hluti þess plasts sem framleitt var fyrir 50 árum er ennþá til. Vitanlega brotna...

MMS steypan

Vildi bara benda fólki á góðan pistil eftir Ragnar Björnsson á vantrú um MMS eitursullið: MMS kraftaverkalausnin og Síðdegisútvarp Rásar 2 í kjölfarið kom á markaðinn frábær töfralausn fyrir trúgjarna frá Hnakkus .

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband