Líffræðiráðstefnan verður haldin 26. 28. október 2017 í Öskju
Ráðstefnan sem haldin er annað hvert ár spannar alla líffræði og veltur breiddin á framlagi þátttakenda.
Staðfestir öndvegisfyrirlesarar:
Christian Klämbt, þroskunarfræðingur
Prófessor við Háskólann í Münster (Westfälische Wilhelms Universität Münster).
Deildarstjóri líffræðinnar (Dean)
EMBO meðlimur
Jean-Philippe Bellenger, lífefnafræðingur
Prófessor við University of Sherbrooke
Terrestrial Biogeochemistry, Department of Chemistry
Lífefnafræðingur sem fæst við líffræði og hefur fært ýmislegt merkilegt fram á undanförnum árum.
Gísli Másson, lífupplýsingafræðingur
Forstöðumaður upplýsingatæknisviðs Íslenskrar Erfðagreiningar.
Big data áskoranir í mannerfðafræðirannsóknum.
Fiona Watt, frumulíffræðingur
Forstöðumaður Centre for Stem Cells and Regenerative Medicine við Kings College í London.
Fæst við rannsóknir á sérhæfingu vefja í spendýrum.
Athugasemdir
Ég skora á RÚV-fréttir og alla líffræðinga að skoða þessa bloggsíðu sem að fjallar um uppgötvun nýrrar tegundar sem að deild er um hvort að sé meira skildari mönnum eða dýrum:
http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/entry/1460069/
Jón Þórhallsson, 19.6.2017 kl. 10:51
Þetta er ekki skilt mönnum eða dýrum(Menn eru líka dýr).. en þetta sem þú linkar á er skáldskapur :)
DoctorE (IP-tala skráð) 19.6.2017 kl. 13:16
Það er kona með Dr.gráðu sem að leggur nafn sitt við þessa rannsókn ásamt allskyns sérfræðingum:
http://bf-field-journal.blogspot.is/p/ketchum-dna-study-sample-26.html
Jón Þórhallsson, 19.6.2017 kl. 13:52
Dr.Melba Ketchum:
https://www.youtube.com/watch?v=C3bOBi1-Zes
Jón Þórhallsson, 19.6.2017 kl. 13:54
Melba Ketchum lærði dýralækningar áður en hún sneri sér að gervivísindum. Hún hefur ekki lokið doktorsgráðu í einu eða neinu.
Samúel gamli (IP-tala skráð) 19.6.2017 kl. 15:35
Mér skilst að hún hafi látið margar virtar Háskóla-rannsóknarstofur gera DNA rannsókn á lífssýnum sem að hún komst yfir:
http://bf-field-journal.blogspot.is/p/ketchum-dna-study-sample-26.html
RÚV-Kasstljós mætti gjarnan skoða þetta mál út frá öllum hliðum.
Jón Þórhallsson, 19.6.2017 kl. 16:02
Sæll Jón
Því miður er ósköp lítið að marka þessi tíðindi af erfðamengi stórfóts, eða sögusögnum um geimverutegundir á jörðinni.
Doktorsgráða tryggir ekki að fólk hafi rétt fyrir sér*.
Það sem skiptir máli eru gögnin, og í þessu tilfelli standast þau ekki skoðun.
Þau voru birt í nýstofnuðu tímariti - líklega vegna þess að ekkert hefðbundinna líffræðitímarita samþykkti greinina.
Gögnin eru samansafn af hreinræktuðu manna erfðaefni, og tæknilegu suði (sem þau túlka sem stórfótsDNA).
Samantekt the Scientist er mjög afgerandi - Stórfótserfðamengið er BULL.
http://www.the-scientist.com/?articles.view/articleNo/34395/title/Bigfoot-DNA-is-Bunk/
*frekar en að doktorsgráða sé nauðsynleg til að ramba á rétt.
Arnar Pálsson, 20.6.2017 kl. 09:40
Það eru þúsundir manna sem að segjast hafa séð þessa veru í USA og internetið er yfirfullt af frásögnum fólks þessu tengdu; ég skora samt á allt fólk að skoða öll myndböndin á þessari síðu; fyrsta myndbandið byrjar neðst og svo er stigvaxandi upplýsing uppá við:
http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/entry/1460069/
Jón Þórhallsson, 20.6.2017 kl. 10:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.